VPN tengingar
Þegar viðkomandi tölva er ekki tengd neti HÍ getur verið lokað á ýmsar tengingar og aðra möguleika. Því þarftu að notast við VPN tengingu meðal annars til að geta gert eftirfarandi:
- Mappa heimasvæði
- Komast inn á gagnasöfn bókasafnsins
- Ná í forrit á rhi.hi.is/gogn
Hér til hliðar má finna leiðbeiningar hvernig þið setjið VPN upp eftir stýrikerfum.
Vandamál við VPN
Ef þú ert búin(n) að setja upp VPN tengingu samkvæmt leiðbeiningum og samt tengist þú ekki þá eru hér algengar ástæður fyrir því að það virkar ekki.
- Vélin er ekki nettengd. Vélin þarf að vera tengd netinu til að geta tengst VPN-i.
- Margar vírusvarnir hafa það öfluga eldveggi (Firewall) að þeir hleypa ekki VPN tengingunni í gegn. Prófið þá að slökkva á eldveggnum í vírusvarnarforritinu (ekki Windows eldveggnum). TrendMicro og ZoneAlarm eru dæmi um varnir sem blokka VPN tenginguna. Við mælum þó ekki með því að slökkva algjörlega á öllum eldveggjum og ef þið slökkvið á eldvegg í vírusavarnarforriti verið þá viss um að Windows eldveggurinn sé í gangi.
- Muna að setja @nemendur.hi.is eða @starfsm.hi.is fyrir aftan notendanafnið.
- Lykilorðið er of langt. ATH að lykilorðið ykkar er í raun aldrei meira en 8 stafir þó svo að það gangi að skrifa fleiri í Uglu og komast þannig inn. Þegar þið tengið VPN þá má ekki skrifa fleiri en 8 stafi fyrir lykilorð. Skrifið þá bara 8 fyrstu stafina og mundið að lykilorðið ykkar er ALDREI meira en 8 stafir.


