Tölvuþjónusta við nemendafélög
Nemendafélögum stendur til boða eftirfarandi þjónusta án endurgjalds:
1. Mail alias
Áframsending á tölvupósti á eitt eða fleiri notendanöfn t.d. póstur sem
berst á mail aliasinn nemendafelag@hi.is er þá sendur áfram á
notendanafnið notendanafn@hi.is
2. Vefsvæði á vefþjóni.
Veffangið er þá http://nemendafelog.hi.is/heiti nemendafelags/
Nemendafélagið getur þá valið á milli þess að fá aðgang að vefsvæði þar sem það getur vistað vefsíður sínar eða fengið aðgang að vefumsjónarkerfinu WordPress.
Öll önnur tölvuþjónusta RHÍ stendur nemendafélögum til boða gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá RHÍ hverju sinni, en með eftirfarandi skilyrði þó:
Greiðandinn verður að vera skipulagseining og verkefni í bókhaldi HÍ, þ.e.a.s. deild, skor eða annar aðili innan HÍ sem hefur bókhaldsnúmer verður að fallast á að greiða fyrir tölvuþjónustu við nemendafélagið.
Viðkomandi aðili innan HÍ sækir þá um þjónustuna í Uglu fyrir nemendafélagið og skuldbindur sig þar með til að greiða kostnaðinn.
Sjá síður nemendafélaga hér: http://www.nemendafelog.hi.is/
Sjá gjaldskrá RHÍ: http://www.rhi.hi.is/about/gjaldskra-rhi/





