Þráðlaust net - HINET
Nemendur og kennarar hafa frían aðgang að þráðlausu neti. Það er kallað HINET og er aðgengilegt í nær öllum byggingum háskólans.
Útbreiðsla þráðlausa netsins miðast fyrst og fremst við kennslustofur og les- og námsaðstöðu nemenda. Skrifstofur starfsmanna eru með netsamband yfir vír.
Að gefnu tilefni skal geta þess að nemendur geta nú tengt tvær tölvur (tæki) við þráðlaust net. Til þess að bæta við þriðja tækinu, sjá hér.
Til að tengjast þráðlausa netinu þarftu að vera skráður notandi hjá HÍ og hafa aðgang að Uglu og fylgja eftirfarandi skrefum:
1. Finna MAC addressu þráðlausa netkortsins
Fyrst þarf að finna svokallaða MAC addressu/physical address þráðlausa kortsins. Smellið á viðeigandi stýrikerfi til að sjá leiðbeiningar um það. (smellið hér til að fá hjálp með að finna rétt stýrikerfi)
- Windows 7 (myndband)
- Windows Vista
- Windows XP
- Mac Lion 10.7
- Mac Leopard 10.5
- Mac Tiger 10.4
- Linux
- iPad
- Android
- Nokia
2. Skrá MAC addressuna
Skrá sig inn í Uglu (ugla.hi.is) og þar undir "Tölvuþjónusta" velur þú "Nettenging" og svo "Þráðlaust net umsókn".

Þá opnast þessi gluggi og þar skrifið þið inn MAC-addressuna. Ekki þarf að hafa bil á milli stafa og stórir stafir og litlir stafir skipta ekki máli hér. Svo er smellt á Senda. 30 mínútum síðar er skráningin komin í gegn.
3. Setja inn WEP lykilinn (security key, network key)
30 mínútum eftir að þú hefur sent inn MAC-addressuna í Uglunni þá getur þú stillt inn þráðlausa netið. Það felst í því að setja inn WEP lykil sem er 12345 en sum netkort krefjast Hexadecimal tölu og er hún 3132333435.
Það getur verið misjafnt eftir því hvaða forrit halda utanum tenginguna en hér á eftir eru þær algengustu.


