Prentun
Hvað kostar að prenta út?
- Prentkvóti
reiknast í einingum. Þannig er ein venjuleg svarthvít prentun á eitt
blað ein eining. Hver eining kostar 7 krónur og því kostar 7 krónur að
prenta út eina blaðsíðu í svart hvítu. - Sé prentað báðum megin á síðu kostar það 2 einingar (14 kr.), en þú hins vegar gerir tréin glöð.
- Hver blaðsíða sem prentuð er í lit kostar 5 einingar (35 kr.) Sjá nánar um litaprentun.
Hvar get ég prentað út?
- Í öllum tölvuverum Háskólans eru prentarar og þar getur þú prentað út.
Hvað kostar að prenta út?
- Prentkvóti reiknast í einingum. Þannig er ein venjuleg svarthvít prentun á eitt blað ein eining. Hver eining kostar 7 krónur og því kostar 7 krónur að prenta út eina blaðsíðu í svart hvítu.
- Sé prentað báðum megin á síðu kostar það 2 einingar (14 kr.), en þú hins vegar gerir tréin glöð.
- Hver blaðsíða sem prentuð er í lit kostar 5 einingar (35 kr.) Sjá nánar um litaprentun.
Hvar kaupi ég prentkvóta?
- Prentkvóti er keyptur hjá þjónustuborðinu Háskólatorgi. Einnig má kaupa hann í gegnum Ugluna með kreditkorti. Þá ferðu undir “Uglan mín” -> “Prentkvóti”.
Hvernig sé ég hvað ég hef notað af prentkvótanum mínum?
- Upplýsingarnir er að finna á forsíðu í Uglunni.
Hvernig stendur á því að fjöldi útprentaðra síðna hefur hækkað án þess að ég hafi prentað nokkuð út?
- Ef þú kannast ekki við að hafa notað þennan pappír er líklegt að einhver annar hafi prentað út á þínu nafni.
- Annað hvort hefur þú gleymt að skrá þig út eða einhver annar hefur komist að lykilorði þínu og skráð sig inn sem þú.
- Ef þú hefur örugglega skráð þig út og þig grunar að einhver hafi komist yfir aðgangsorðið þitt, skaltu breyta því við fyrsta tækifæri.








