Mikilvægar upplýsingar fyrir nýnema

Nýnemar fá veflykil þegar þeir hafa greitt skólagjöldin í Háskóla Íslands, veflykillinn birtist á greiðslukvittun og er einnig sendur í tölvupósti eða í heimabanka ef greitt er í gegnum heimabanka.  Nemendur sem hafa veflykil, geta farið inná slóðina nynemar.hi.is og farið þar í staða umsóknar(ýta á spurningarmerki). Þegar inn á þá síðu er komið veljið þá sækja notandanafn og lykilorð á uglu.

Ef veflykillinn finnst ekki eða er hægt að fá nýjan hjá þjónustuborðinu Háskólatorgi sem er opið 08:30-18:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda póst til nemendaskrár, nemskra@hi.is, sími 5254309.

Eftir að notandanafn og lykilorð er virkt kemst viðkomandi inn í allar tölvuversvélar, vefpóst (webmail.hi.is) og Ugluna (ugla.hi.is). Ef lykilorð týnist eða gleymist er hægt að koma í Tölvuþjónustuna Háskólatorgi og fá nýtt lykilorð gegn framvísun skilríkja. Tölvuþjónustan er opin 08-16.

Í Uglu má finna allar umsóknir er varða þjónustu Reiknistofnunar svo sem umsókn um þráðlaust net, ADSL og Garðanet. Uglan hefur einnig að geyma persónubundnar upplýsingar, námsferil þinn, skjöl og umræður námskeiða og fleira.

Þegar notendanafn er búið til fær notandinn aðgang að heimasvæði. Stærð heimasvæða hjá nemendum er 1 gb en má það teygjast tímabundið í efri mörk 2 gb í hámark eina viku. Einu sinni á dag er tekið öryggisafrit af heimasvæðum notanda. Hægt er að tengjast heimasvæðum farið er í uglan mín - Skrárnar mínar. Undir krækjunni heimasvæði má finna frekari tengimöguleika, sjá einnig möppun drifa.

Nemendur geta sett upp sínar eigin heimasíður. Á heimasvæði hvers og eins er falin mappa sem kallast .public_html. Allt sem sett er í þessa möppu er aðgengilegt fyrir alla á netinu. Slóðin að vefsíðunni er www.hi.is/~notandanafn

Nánari upplýsingar um stillingar og notkunarmöguleika er að finna hér á síðu RHÍ

Hægt er að hafa samband við okkur í Tölvuþjónustu RHÍ með því að senda okkur tölvupóst á help@hi.is, í síma 5254222 eða koma til okkar í Háskóltorg.