Reiknistofnun HÍ flytur yfir í Sturlugötu 8

Fréttir | Monday, 21 September 2009

Reiknistofnun Háskóla Íslands er að flytja þessa vikuna úr Tæknigarði yfir í Sturlugötu 8. Á meðan á þessum flutningum stendur getur verið erfitt að ná í fólk í síma og því mælum við með að nota tölvupóst.

Tölvuþjónusta RHÍ (þjónustuborðið) hefur nú þegar flust um set og er nú staðsett á milli þjónustuborðsins og tölvuversins í Háskólatorgi.Þar verður almenn tölvuþjónusta fyrir nemendur og starfsmenn, en sem fyrr eiga öll stærri mál starfsmanna að fara í gegnum þjónustusamninga eða almenna verkbeiðni. Einnig verður tölvuþjónustan (þjónustuborðið) í Tæknigarði opið eins og kostur gefst.

Við biðjumst velvirðingar ef þið verðið fyrir óþægindum á meðan á flutningum stendur en sem fyrr er alltaf hægt að nálgast okkur í síma 525-4222 og í gegnum tölvupóst help@hi.is