Question Writer uppsetning
ATH) Question Writer er einungis fyrir starfsmenn HÍ.
Allt virðist nú vera í lagiAðfararnótt fimmtudagsins 5. febrúar henti það að hálfs terabætis skráasvæði fyrir Lotus Notes sem hýst var á miðlægri diskastæðu hrundi í kjölfar þess að diskastæðan var endurræst vegna uppfærslu. Viðgerð á skráasvæðinu sem tók mestallan fimmtudag virðist síðan ekki hafa heppnast, því það hrundi aftur næstu nótt. Var því tekið á það ráð að afrita öll gögn yfir á nýtt skráasvæði. Tók það mestallann föstudag og var Lotus Notes komið upp aftur um kvöldmatarleytið þann dag. Sem komið er virðist allt vera í lagi, enn hefur enginn komið fram sem tapað hefur gögnum, en svo virðist sem margir indexar séu í ólagi. Það þarf því að endurbyggja þá indexa. Ef gögn hafa tapast er hægt að endurheimta þau úr öryggisafritum. Í kvöld verður Lotus Notes Domino Server uppfærður úr útgáfu 8.0 í 8.0.2. Það er ekki búist við að það valdi meira en nokkurra mínútna niðritíma, í mesta lagi hálftíma. |
|